Beautiful Madness
31.12.2006 17:50:01 / Stefán

Betra seint en aldrei!

Það er nú soldið seint að segja þetta en samt:

Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Takk fyrir kærlega fyrir mig og allar frábæru stundirnar á árinu sem er að líða

Ég fékk nú ekki mikið af gjöfum en samt eitthvað.....bestu gjafirnar voru án efa báðar náttbuxurnar (gaf reyndar Gunnari mínum aðrar), boxerarnir og Will&Grace þættirnir ;)

Við Gunni skelltum okkur á litlu-jólin hjá samtökunum og við vorum þeir einu sem vorum ekki með pakka :S......sorry, við höfðum bara ekki tíma til þess að kaupa neitt.
Það var samt mjög gaman þarna, og við eigum örugglega alltaf eftir að fara á þessa fundi (nema við séum uppteknir eða komumst ekki útaf einhverju)

Svo er ég byrjaður að vinna á sama stað og systir mín, þ.e. sambýlinu sem er í götunni. Það er alveg ágætt, held samt að þetta sé nú ekkert sem að ég á eftir að vinna við í framtíðinni. Samt gott svona þar sem mig vantar péning...

En já, Iðunn frænka er komin aftur frá Ástralíu :P
Geðveikt fyndið að heyra hana tala ensku, hún talar með svona alvöru áströlskum hreim...
Hún sjálf hefur nú samt ekki breyst mikið, aðalega bara orðin brúnni og veit ekki alveg hvað hefur verið að gerast uppá síðkastið...en það kemur allt ;)

Blogga svo meira seinna :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 00:45:32 / Stefán

Loksins blogg!

Vá, ég bara trúi því ekki að allir hafi tekið þessu svona vel ;)

En já, ætti kannski að vera löngu búinn að blogga. Það er nefninlega svo mikið búið að gerast en ég á örugglega ekki eftir að muna eftir því að skrifa allt.
En allavegana hafa seinustu vikur verið svona upp og niður, en það er allt búið að lagast núna og mér líður bara mjög vel...kannski einhver ástæða fyrir því?

Er búinn að fara á tvo ungliðafundi hjá samtökunum ‘78 og það var bara ágætt. Var soldið skrítið fyrst en svo varð þetta bara alveg þokkalegt, það var samt skemmtilegra í seinna skiptið.
Veit ekki hvort að ég fer núna á sunnudaginn, en fer örugglega eftir viku (ef ég hef tíma, útaf prófunum).

Það gengur bara vel hjá sála, á allavegana eftir að mæta einu sinni enn til hennar svo kemur bara í ljós hvað ég geri.

Sáli er samt eiginlega of flókin og maður þarf helst að þekkja allt tilfinningar sem til eru ef maður ætlar að geta sagt henni eitthvað. Það er samt búið að benda mér á einhvern heilunarmiðil (held að það sé kallað það) og ég held að það sé bara mjög góð hugmynd að prófa það. En ég veit samt ekki hvort að þess sé þörf.

Ég er loksins kominn með bílpróf, svo að núna þurfiði heldur betur að passa ykkur :P

Læt þetta duga í bili en ætla að reyna að fara að blogga oftar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 19:37:04 / Stefán

Stærsta leyndarmál aldarinnar

Já, þið lásuð rétt, þið eruð að fara að komast að stærsta leyndarmáli aldarinnar.

Aðalástæðan fyrir því að ég er að segja ykkur þetta núna, er að ég get bara ekki þagað yfir þessu lengur.

Ætla að birta hérna gamalt blogg sem að Sóley frænka skrifaði og það var/er “um mig”, eða réttara sagt hvernig hún skynjaði mína hugarangist. Og hún hitti naglann á höfuðið, þessi texti er ég, hann er hvernig mér líður.

Það sem er alið upp í þér, verður þú? 
Að vera einstaklingur sem er heilaþveginn af skoðunum annarra án ráðrúms til að mynda sínar eigin.

Að vera einstaklingur sem er hræddur við að sýna sitt innra eðli, vegna hræðslu við umheiminn? Að óttast alla í heild, allar þeirra skoðanir, öll sjónarmiðin, alla hina hliðina. Óttast það hvernig þú kemur fyrir, hvernig þitt háttalag er í augum annarra. Allar hreyfingar verða uppfullar af ótta, vandræðalegar og varkárar.

Sífelt í umhverfi sem áreytir þig, umhverfi sem skilur ekki hvað þú ert að hugsa, hvernig sálin þín er. Hvernig þú ert. Umhverfi sem er án umburðalyndis. Umhverfi sem þú óskar stundum að þú sért ekki hluti af. Umhverfi sem gleypir þig í sig og neytar að sleppa.

Bara þú og óendanlegt myrkur í heimi sem tekur ekki mark á þér. Sér þig ekki þar sem þú stendur í horninu, í horninu þar sem ríkir þung þögn. Að líða svo tilgangslaus að ekkert getur kveikt glampan í augunum. Að bara vera þarna......

Fólk talar, það talar um allt og ekkert. Samræður sem þú ert ekki hluti af, samræður sem þér finnst að snúist um þig, niðurlútnu veruna sem stendur afsíðis. Veruna með sína feddisa og fóbíur. Veruna sem enginn veit í raun og veru neitt um.

Ekkert hægt að gera? Uppgjöf það eina sem kemur upp í kollinn, leyfa þessu pakki að vinna. Sýna þeim í eitt skiptið fyrir öll að þau séu búin að sigra í stríðinu með þessari eintómu illsku sem þau ómeðvitað hafa sýnt í fasi sínu gagnvart þér. Sanna fyrir heiminum hugsanir þínar, þær hugsanir að heiminum sé alveg sama.

Innst inni vonaru samt að eitthver sjái þig, sjái hvernig þú ert, skilji þig og hjálpi þér. Hjálpi þér að verða sýnilegur einstaklingur. Komi þér uppúr farinu sem virðist við fyrstu sýn vera orðið svo djúpt að engin leið er uppúr því.

Öll þessi einsemd, allar þessar hugsanir. Allar þessar bévítans vangaveltur um skoðanir annarra. Allt til komið vegna gáleysis þeirra sem standa þér næst. Gáleysis þeirra sem ættu að sjá þig en eru í raun blindir á þá dásemd sem býr innra með þér.Þrátt fyrir blindni sumra, þrátt fyrri óréttlætið, er altaf ljós. Ljós sem sér alla þessa dásemd. Ljós sem stendur reiðubúið. Bíður eftir kallinu.

Sóley frænka var fyrsta manneskjan sem fékk að vita þetta leyndarmál, enda er hún eina manneskjan sem að ég treysti 100.000 %

Það eina sem ég get sagt er að sama hver viðbrögðin ykkar verða við þessu leyndamáli eiga þau ekki eftir að breyta líðan minni,ég á alltaf eftir að vera svona,  en að sjálfsögðu eigið þið rétt á ykkar eigin viðbrögðum eins og allir aðrir.

Ready – Steady – Here it comes

Ég er samkynhneigður (hommi), eða ég held það.
Hélt samt fyrst að ég væri tvíkynhneigður, en það er víst voða algengt meðal homma (kallast víst afneitun)

Eins og ég sagði áðan að þá eigið þið rétt á ykkar eigin viðbrögðum.
En ekki gleyma því að ég er ekkert að fara að breytast, á ennþá eftir vera eins og ég var.
Það eina sem gæti breyst er álit ykkar á mér.
Vona nú samt það besta, en ef það verða einhver leiðindi þá bara greyið ég, eða eitthvað þannig.

Og núna þar sem þetta er “out in the open” þá blogga ég kannski oftar, ætla samt ekki að lofa neinu.

 

 




» 28 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 12:46:46 / Stefán

Ammæli og eitthvað rugl!

Ammæli og læti í gær :P
Loksins orðinn 17, ætla að reyna að drífa mig að taka þetta blessaða bílpróf. Þá verður lífið vonandi miklu einfaldara.
Það kom alveg ágætlega mikið af fólki, alveg....1....5....11....eitthvað um 20
Fékk nokkrar gjafir og sonna :P

En æji hvernig er eiginlega hægt að vera svona misheppnaður.
Í fyrsta lagi þá bloggaði ég um hluti sem að ég var ekki einu sinni búinn að minnast á við þann sem hluturinn er um, vona að þið skiljið hvað ég er að tala um (fyrirgefðu Flosi minn).
Svo er þetta blessaða þunglyndi mitt búið að eyðileggja líf mitt og það er sko engin lygi.

Ætla ekki, og mun aldrei fara of mikið í smáátriðin því að það er aldrei aðvita hverjir eiga eftir að lesa þetta.

En er ég virkilega svona leiðinlegur eða fráhrindandi að allir hætta að tala við mig? Hvað annað getur það eiginlega verið sem leiðir til þess að fólk hættir að tala við mig?
Ég vil vera þessi vinsæli, sem þekkir alla og á fullt af vinum og allt er fullkomið, það er samt aldrei að fara að gerast. Afhverju er þá verið að gera þessar bíómyndir sem gera ekkert annað en að rugla mann í ríminu og brengla sjálfsímynd manns?

Sama hvað ég reyni að vera glaður og ekki þunglyndur alla daga, þá lendi ég samt alltaf í því að fá þessi ekki skemmtilegu þunglyndis köst útaf engu. Ég get þannig séð ekki séð að það sé eitthvað að mínu lífi, nema bara þetta með að eiga fá vini og vera búinn að rústa persónulega lífinu líka, gerist ekki betra.

Er ég kannski bara að taka þessu of illa, eins og öllu öðru, eða tek ég þessu öðruvísi en ég átti að taka þessu?
Afhverju getur lífið ekki bara verið jafn einfallt og ....fiskur?

Er að spá í því að hætta bara að blogga, þar sem að ég skrifa bara um eitthvað sem engin skilur, veð úr einu í annað, það er enginn sem að les þetta og svo skrifa ég bara um hluti sem að særa fólk og lætur það fara ......frá mér?


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 12:22:04 / Stefán

Veikur og afmæli á morgun!

Að láta sér leiðast er eitthvað sem að ég geri best...
Er heima, veikur. Er með streptókokka sem að ég fékk frá ákveðnum aðila.


Annars er ekki mikið að frétta, nema bara að það ég á afmæli á morgun (loksins að verða 17) og svo er hundasýning á sunnudaginn eftir viku (8. okt.). Þetta verður í fyrsta skipti sem að ég sýni tvo hunda, vona samt að það gangi vel.

Ég er farinn að fá smá bakþanka í sambandi við æðislegustu manneskju í heimi sem að ég minntist á í seinasta bloggi. En mér líður allt öðru vísi þegar ég er nálægt henni heldur en þegar ég er heima, þá er ég alltaf að spá í að enda þetta, þó að ég megi í rauninni ekki við því.

Ég þarf að fara að drífa mig til sála, það segja allir að hann hjálpi roselga mikið. Ég er nefninlega orðinn algjör tossi, you know why. En hins vegar veit ég ekki hvort að sáli eigi eftir að hjálpa mikið, vona það samt.

Núna þarf ég bara að fara að læra og læra, til að ná öllum prófunum sem eru fram undan, hef ekki verið nógu duglegur við það að læra undan farið (hef samt náð öllu). Hef ekki einu sinni haft tíma til að taka bílprófið (skriflega hlutann), get samt alveg sótt um það hvenær sem er, svo er náttla tveggja vikna bið (sem að ég get nýtt til að læra undir prófið). Svo þegar það er búið þá get ég klárað ökutímana og tekið verklega prófið.

Veit nú ekki hvað ég get sagt meira...tvö blogg á einum degi er nú bara nýtt met :P

 



                                 

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 11:48:40 / Stefán

Þunglyndi!

Er lífið of erfitt til að lifa eða er það kannski bara of flókið?

Að bíða eftir því að eitthvað gott gerist er ekki lausnin. Hvað ætlaru svo að gera ef það gerist ekkert gott? Eða ef þú missir það sem að þú hélst að gæti bjargað þér? Eða ef þú kemst að því að þetta vara bara allt saman plat?

Sekkur maður bara djúpt í þunglyndi? Það djúpt að ekkert getur bjargað manni, hvað sem reynt er. Það endar örugglega bara með því að maður druknar.

Hvernig er hægt að koma í veg fyrir þennan óskemmtilega hugsunarhátt?
Vildi óska þess að ég vissi svarið við þessum spurningum, því þá væri lífið miklu auðveldara og þess virði að lifa því.

Hver veit svo sem svarið við þessu?
Sá sem það gerir, endilega hafa samband við mig.

                                         

Ég hef samt sterkan gun um það að mitt þunglyndi snúist meira um eigingirni og að frekju. Ég á að fá það sem ég vil, og það sem mér finnst það á öðrum að finnast líka.
Höfnun er eitthvað sem að ég kann ekki að taka.

Þakka bara fyrir að hafa ekki lent oft í því, hver veit hvar ég væri þá núna?

Er eitthvað gagn af sálfræðingum, vita þeir virkilega hvað þeir eru að gera?

Virka þunglyndislyf eða er það bara eitthvað rugl?

Að geta gert það sem maður vill er örugglega svo miklu betra en að geta bara gert það sem mamma vill.
Eins og t.d. þegar maður er orðinn 18-20, þá kemst maður inn á skemmtistaði og maður er kominn með bílpróf (samt ekkert endilega á sinn eigin bíl) og maður er orðinn sjálfráða.
Þegar maður er 18 ára þá er maður ungur, samt er alveg heilt ár og einn dagur þangað til að ég verð 18.

Þó að ég sé alveg búinn að gera mér grein fyrir því að ég er þunglyndur að þá er ég samt ekki að gera neitt í því. Er ekki tilbúinn að gera það alveg strax.

Verður maður einhvern tímann tilbúinn?
Eða verður það kannksi orðið of seint?


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 22:17:57 / Stefán

Gay Pride búið og skólinn byrjaður!!

Gay Pride, komin og farin.

Gleðigangan var 12. ágúst og ég skellti mér auðvitað í bæjinn. Þetta var í fyrsta skiptið sem að ég fer á Gay Pride. Ætli þetta verði ekki bara árlegur viðburður hjá manni núna, að skella sér í bæjinn aðra helgina í ágúst :P Aldrei að vita, enda var þetta geðveikt gaman.


 

Sumarið, sem að aldrei kom, var alltof fljótt að líða. Búinn í vinnunni fyrir fullt og allt (enda samt öruggelga þarna á næsta ári) og sumarfríið bara búið.
Það eina sem að ég er búinn að gera seinustu 3 mánuði er að vinna (og læra eikkað smá). Mjög spennandi, eða þannig, fór reyndar að jeppast smá um helgina með Benna og tveimur vinum hans. Veit nú reyndar ekkert hvert við fórum enda er ég ekki sá besti í landafræði. En við gistum í bústað við Laugarvatn þannig að ég geri ráð fyrir því að við höfum verið að jeppast eikkað á þeim slóðum. 

Skólasetningin var á mánudaginn, fullt af nýjum krökkum.
Kominn í nýjan bekk, 4-R, sem er samansafn af krökkum úr 3-R og 3-S (15 úr 3-R og 11 úr 3-S).
Fyrsti skóladagurinn var svo á þriðjudaginn (fengum reyndar einhverja heimavinnu á mánudeginum) og hann var nú bara frekar rólegur. Fengum námsáætlanirnar og kennararnir töluðu um bækurnar og hvað við værum að fara að læra. Reyndar var einn kennari sem fór að kenna okkur (líffræðikennarinn) og við fengum alveg þó nokkra heimavinnu hjá henni, þetta var ekki einu sinni tvöfaldur tími.

Eftir áramót kemur svo í ljós hvort að ég haldi áfram í Verzló eða skipti um skóla, veit ekki einu sinni hvað ég ætla að gera í framtíðinni. Eikkað svo flókið og erfitt að ákveða sig. Hvað ætti ég að verða í framtíðinni? Dýralæknir, læknir, hárgreiðslumaður, módel, bakari, kokkur eða bara eikkað annað? Það er bara alltof mikið sem að kemur til greina en samt svo lítill tími sem að maður hefur til að ákveða sig.

Nýjasta nýtt, fyrir utan það að skólinn er byrjaður, er að ég er búinn að lita á mér hárið, aftur, og í þetta skiptið virkaði það. Hárið er örðið dökk dökk brúnt (næstum því svart, samt ekki alveg) og svo er ég búinn að kynnast æðislegustu manneskju í heimi (fáið kannksi að vita eitthvað meira seinna).

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 18:02:37 / Stefán

Get ready to....read!!!

Vá hvað það er langt síðan ég bloggaði, eða það finnst mér allavegana.

Er ekki best að byrja bara á þessu elsta og enda svo á þessu nýjasta?

Ég fór sem sagt með mömmu og pabba til Bretlands 19. maí, eins og þið ættuð að vita.
Við gistum hjá vinkonu mömmu. Hún býr í Horsham sem er frekar sunnarlega.
Á laugardeginum fórum við með lest til London, fórum þar í nokkrar búðir og svo um kv-ldið fórum við í leikhús að sjá Billy Elliot söngleikinn.
Hann var alveg ágætur, hefði verið betri ef að aðalleikarinn hefði verið líkari Billy eins og hann er í myndinni. Fattaði ekki strax að þetta ætti að vera Billy, en hvað með það....

Sunnudagurinn fór í það að versla, versluðum til 16 eða styttra af því að þá lokuðu búðirnar.

Ég hefði eiginlega átt að vera löngu búinn að blogga af því að ég er eiginlega búinn að gleyma öllu :lol:

En, já við versluðum svo meira á mánudaginum og svo aftur á þriðjudeginum.

Vinkona mömmu var búin að finna einhverja dýrabúð og ég fór í hana (man ekki hvaða dag) og hún var risastór. Allar tegundir af hundamat voru til, fullt af fiskum, fullt af fuglum, svo var svona hringlaga búr í mirði búðinni (búrið náði ekki lengra en upp að mitti og var ekki með neinu loki (eða þaki) þannig að maður gat horft ofan í það. Í því voru kanínur, skoðaði það reyndar ekki mikið, en Sævar sagðist allavegana hafa séð jarðíkorna þarna ofan í.

Svo snemma á miðvikudeginum fórum við heim, heim til gamla “góða” Íslands.

Við fórum út að borða alla dagana, nema laugardag og þriðjudag (eða var það mánudag) og ég fékk mér alltaf það sama í eftirrétt. Bara svona svo að ég vissi hvar þetta besta væri ef ég skildi nú fara aftur út.
Ég fékk mér alltaf eikkern ís í skál með rjóma og brownie, er eiginlega fyrir tvo. Það er hægt að fá svona héra heima líka man bara ekki hvar (Fridays???). Ísinn var bestur á fyrsta staðnum (Smith & Western) af því að það voru sykurpúðar og smarties í ísnum :P


Núna er ég búinn að vinna í næstum því eina viku. Það er alveg ágætt bara svolítið kalt.
Fyrsta daginn fór ég í Fossvogskirkjugarð í einhverja kynningu (byrjaði klukkan 8 og var búin klukkan 10 eða eikkað þannig). Þá fóru allir í sinn garð, þeir sem voru á bílum áttu að bjóða fólki með sér annars yrði hringt á leigubíl (þ.e.a.s ef að það væri ekki pláss fyrir alla í bílunum).


Þegar allir voru komnir í Gufuneskirjugarð var meiri kynning. Kynning á starfsfólki garðsins og þetta helsta sem að er að gerast í ár (sem er nota bene ekki neitt, nema 17. júní) því að þá þarf garðurinn að vera í topp standi. En eftir 17. júní verður þetta tekkið rólegar og þá verður örugglega meira “chill”.
Okkur var svo sagt að garðurinn skiptist í norður og suðurhluta. Svo var skipt í hópa (blóma hópur, svo hópur sem að klippir grasið meðfram leiðunum og eikkað þannig og svo sláttur hópur). Ég er í sláttur hóp og á að slá gras í allt sumar. Ég á að vera á norðursvæðinu en þar sem að hópstjórinn minn er ekki ennþá kominn þá var minn hópur bara að slá með hinum sláttur hópnum (sem er á suðursvæðinu).
Svo núna á þriðjudaginn þá vorum við búin að slá allt sem að við áttum að slá þannig að við fórum að þrífa vélarnar og svo erum við núna að hjálpa hinum hópunum (grasklippi hópunum) og förum svo aftur að slá á þriðjudaginn.

Það er enginn að vinna þarna sem að ég þekki, nokkrar ‘88 og ‘87 stelpur úr Foldaskóla. En ég er samt búinn að kynnast einni manneskju sem er nú bara mjög gott myndi ég segja, miðað við það að ég er ekki vanur að kynnast fólki svona snemma (kynntist þessari mannesju strax fyrsta daginn).

Núna um helgina er stefnan sett vestur til að fara í fermingu og hundurinn fær að fara með :P
Held að við komum aftur á mánudaginn af því að fermingin er sko á sunnudaginn.


Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Vona að þið hafið nennt að lesa þetta allt :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 01:46:02 / Stefán

Ólæknandi sjúkdómur!!!

Ég og aðrir rauðhærðir einstaklingar erum víst með ólæknandi sjúkdóm, höfum enga sál og ef við þitum þig þá þarftu að sótthreinsa sárið (tannaförin) sem fyrst. Þetta og miklu meira stendu á þessari svaka skemmtilegu síðu sem að Sóley minntist á: http://www.gingerkids.org/

Þetta gefur mér ennþá betri og fleiri ástæður fyrir því afhverju ég ætti að lita á mér hárið.
Það verðu gert þann 17. maí klukkan 14:00 í Hár & Smink sem er fyrir ofan Smáralindina, svona fyrir ykkur sem viljið koma og fylgjast með þessum merka atburði :P

Annars mest lítið að frétt nema það að það eru bara tvö próf eftir, íslenska og enska. Svo 19. maí fer ég til London (endilega látið mig vita ef ykkur vatnar eða langar í eikkað), ég kem svo aftur 24. maí.


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 15:33:18 / Stefán

Blogg??? Ó, já...

Þrjú af sjö prófum búin og næsta er á morgun (danska). Mér gekk ekkert alltof vel í fyrsta prófinu en prófið þar á eftir var léttara (tölvunotkun), tíminn var bara eiginlega of lítill og kallinn sem sat yfir var ekkert að láta okkur vita hvað það væri mikill tími eftir.
Bókfærsluprófið gekk svona la la, ekkert alltof vel. Það vantaði 1000 kall upp á í reikningsjöfnuðinum. Vona bara að hin prófin eigi eftir að ganga betur.


“A big step in the right direction,” eins og þeir segja á ensku, var tekið áðan (ég vona það allavegana). Þarf ekkert (og ætla ekki) að fara meira út í það.

Svo er ný sería byrjuð af America’s Next Top Model, ég veit hver vinnur :P
En hvað varð eiginlega um gellurnar sem að unnu fyrstu tvær seríurnar?
Eva og Naomi verða í þessari seríu sem þýðir að þær eru ennþá á lífi og á kafi í þessum blessaða fyrirsætubransa.
Svo eru Ástralir líka með svona þætti (Australia’s Next Top Model) og Þjóðverjar (Germany’s Next Top Model).
Hvað er eiginlega málið með þetta?
Sú sem vann áströlsku keppnina er með átröskun og sú sem lenti í öðru sæti er þunglynd. Ég get nú ekki sagt að þær séu mjög góðar fyrir myndir, eru einhverjar fyrirsætur góðar fyrirmyndir?
Sjáum til dæmis hana Kate Moss, á kafi í kókaíninu eða var það allavegna.

En nóg um þetta rugl, næst á dagskrá hjá mér (17. maí, þ.e.a.s. eftir prófin) er að fara í klippingu. Stefnan er sett á að lita hárið (í fyrsta skipti) og þá meina ég Lita það, ekki neinar strípur.
Mamma er samt ekki alveg sátt en hvað með það, þetta er mitt hár og eins og staðan er í dag finnst mér þetta ekki vera fallegur háralitur. Ég er að spá í að lita það súkkulaði brúnt einhvern vegin. Svo ef það er alveg hræðilegt, þá læt ég bara raka hárið af.


Svo eftir það (þann 18. maí) ætla ég að horfa á Silvíu Nótt og daginn eftir er ég bara farinn til London. En Sóley ætlar að taka upp aðalkeppnina í Júrósvisíon, eða reyndar ætlar hún að taka það upp fyrir sig og lána mér svo.

Hef ekkert meira að segja núna, en ég ætla að reyna að hætta með svona blogg sem “meika” ekkert “sense”.


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 23:18:41 / Stefán

Miðvikudagurinn 3. maí 2006 (Langt blogg sem "meikar ekkert "sence")

Þetta eina atkvæði sem hefur verið greitt í skoðanakönnuninni og þessi tvö komment, urðu til þess að ég ætla að reyna að blogga aðeins oftar, þó að ég eigi að vera að lærafyrir næsta próf :lol:


Fyrsta prófið búið og næsta próf er ekki fyrr en á föstudaginn (tölvunotkun). Sem þýðir að ég get sofið út og gert eikkað allt annað en að læra núna, eins og t.d. bloggað :P

Eins og vanalega þá veit ég ekkert hvað ég á að blogga um, enda er lífið mitt ekki það mest spennandi í heimi.

En ef lífið mitt væri blóm, þá væri það örugglega fífill. Allir fíflar eru alveg eins, engin breyting “what so ever”, alltaf alveg eins frá ári til árs.
En er lífð ekki eikkað sem við ráðum hvernig er, ég gæti alveg breytt lífi mínu í rós eða eikkað annað flott blóm. Það fer bara eftir þessu: langar mig virkilega til þess að breyta lífi mínu? Ég er nú ekki svo viss um það. Smá breytingar eru nú svo sem allt í lagi, en það eru þessar miklu sem ég hræðist. En hvar værum við ef breytingar væru nú ekki til staðar, væri þá ekki líf okkar allra alveg eins?

Afhverju þarf lífið og allt sem því tengist að vera svona flókið?

Lífið er enginn dans á rósum. Nei, langt í frá er það þannig. Lífið er eikkað sem að við þurfum að fara vel með. Allt sem við gerum getur haft áhrif á líf okkar seinna meir. Þá er möguleiki á því að við verðum þunglynd, félagsfælin, getum aldrei sofið hjá, getum aldrei talað við svona útlýtandi fólk, hræðumst hvort annað, verðum geðveik eða endum bara í kirkjugarðinum.

Þetta hljómar ekki spennandi, en þetta getur komið fyrir hvern sem er. Það borgar sig bara að fara vel með sig og ekki gera neinar vitleysur í lífinu.

Getum tekið fórnarlömb nauðgara sem dæmi. Gerandinn lifir bara eðlilegu lífi alla ævi (oftast, samt ekki alltaf) en fórnarlambið getur komið mjög illa út eftir svona atvik.
Oftast er þetta gert við lítil börn sem vita ekkert. En gerandinn ættni nú samt að vita betur. En einhvernig virðst það ekki vera svo. Ekki nema að gerandinn sé bara að drepast úr greddu.
Seinna meir endar það þannig að ef fórnarlambið kærir gerandann þá fer gerandinn í fangelsi (ef hann er dæmdur sekur) en það fer líka oft þannig að fórnarlambið verður þunglynt og vill ekki leyfa nú vernadi kærasta/manni sínum að sofa hjá sér (gerandinn er oftast kk) svo getur það nú líka orðið það slæmt að fórnarlambið vilhi bara alls ekki að karlmenn snerti sig.
Og eins og þið vitið flest leiðir þunglyndi oft til sjálfsmorðs og er ég ekki frá því að það sé leið sem að mörg fórnar lömb náuðganna “velji”.

Breytingar á lífinu geta líka verið til góðs. Eins og ef við reynum að “rækta” vini okkar, eða hvernig sem máltækið var nú. Og líka ef við hugsum jákvætt, hötum ekkert (eða frekar lítið) og svo ef maður hefur vit á því að segja nei þegar fólk bíður manni fíkniefni.
Því eins og við vitum að þá er ekkert “turning back” ef maður prufar einu sinni (stærð skammtsins skiptir engu máli).

Erum við þá ekki sammála um það að flest sem að við gerum getur haft áhrif á okkur seinna?
Og er það þá ekki líka þannig að það er okkur að kenna ef við þurfum að fara á Vog eða Stuðla.
Ef við verðum þunglynd, þá er það nokkurn veginn okkur að kenna. Samt ekki ef okkur verður nauðgað, eða jú, kannski. Það erum við sem ákveðum að segja engum og þá er engin sem getur hjápað okkur í sambandi við þetta og það leiðir til þunglyndis af því að okkur líður svo illa. En ef við aftur á móti segjum einhverjum, þá líður okkur einhvernvegin miklu betur og við getum haldið áfram að lifa lífinu, held ég (ég hef náttúrulega enga reyslu af þessu).

Ég er ekki alveg að skilja þetta blogg, var ekki viss hvort að ég
 ætti að hafa það hérna eða ekki en ákvað samt að hafa það.

Langar svo bara að koma því á framfæri að ég er
 kominn með nýtt Msn: stebbi1989@hotmail.com


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 20:43:36 / Stefán

Mánudagurinn 1. Maí (Verkalýðsdagurinn) 2006

Þetta með það að ég myndi örugglega blogga meira af því að ég var veikur var ekki alveg að gera sig. Hef bara verið frekar latur seinustu daga (seinasta mánuðinn), ekki einu sinni nennt að læra. Er ekki í neitt svakalega góðum málum í sambandi við lærdóminn, búinn að dragast nokkuð mikið aftur úr og svoleiðis.

Prófin byrja svo á fullu í þessari viku (fyrsta prófið á morgun) og ég er ekki byrjaður að læra fyrir þau. Fyrsta prófið er stærðfræði (fell pottþétt á því). En eftir prófin fer ég beint til ,,the UK’’ og kem svo aftur 24. maí.

Hef samt ekkert mikið að segja þannig séð, nema kannski bara það að mér finnst eins og ég sé að breytast. Tónlistar smekkurinn er búinn að breytast, samt ekki alveg, hlusta samt ennþá á þetta helv**** píku-popp en það er að fara minnkandi (en það hverfur pottþétt aldrei).

Svo er það þetta með fyrisætu ruglið hjá Eskimo, ég held að ég sé hættur við. Allavegana sem stendur, kannski ég geri þetta bara seinna. En ég fékk sko svar og þá var mér sagt að ef ég vildi sækja um ætti ég bara að fara niðreftir til þeirra og fylla út umsóknareyðublað og svo væru teknar nokkrar myndir og ég þarf að borga 1000 kr. fyrir það að sækja um (sem er ekkert það mikið). En ég fékk þó svar.

Svo er þetta Minn Sirkus rugl í fullum gangi, efast nú um að ég skrái mig þar. Þó að blog.central. sé eikkað inní þessu. Var svona að spá í hvort að ég ætti ekki bara að fá mér svona bloggar síðu (www.bloggar.is), ekki að blog.central sé eikkað slæmt bara að spá í að prfua eikkað nýtt. Svo getur maður verið með myndirnar sínar þar inná.

Svo má ekki gleyma því allra nýjasta, eða þannig. Sóley frænka er búin að taka bóklega bílprófið og hún náði. TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ, BESTASTA FRÆNKA Í HEIMI!!!

Þá er bara það verklega eftir og vona ég bara að Palli fari nú að hunskast í bæjinn. Svo að þú getir nú tekið það.

Held að þetta sé bara komið í bili, reyni að hafa þetta eikkað lengra næst.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 20:12:19 / Stefán

Sunnudagurinn 26. mars 2006

Það er næstum því heill mánuður síðan að ég skrifaði seinast (þ.e.a.s heill mánuður síðan að Sóley varð 17, og hún er ekki ennþá búin að taka bílprófið)

En allavegan þá er ekkert svakalega mikið búið að gerast.
Það nýjast er að Silvía Nótt, eða réttara sagt Silvía Night, er búin að frumsýna myndbandið sitt. Það er bara geðveikt. Ef þú hefur ekki ennþá séð það ertu ekki í góðum málum, eða þannig. Ýttu bara hér :P

Að vera veikur og eiga Siberian Husky getur verið soldið mikið vesen. Ég komst að því núna fyrir stuttu.
Mamma tók þessum veikindum kannski of alvarlega og þess vegna bitnaði það kannski frekar mikið á hundinum. Sko, mamma leyfði mér ekki að fara út og þegar ég var einn heima (með hundinum) þá gat enginn farið með hann út að labba. Og á föstudaginn þá fór enginn með hann út að labba allan daginn. En ég gat samt hleypt honum út í garð :P

Það merst persónulega sem hefur gerst er kannksi bara eikkað sem ég á eftir að sjá mikið eftir að hafa gert. Nema að það gangi upp auðvitað, þá er aldrei að vita nema að ég verði frægur :P
En allavegana, það sem ég gerði var það að sækja um hjá Eskimo *blush*
Ég hefði aldrei átt að segja þetta, en hvað með það. Það er hvort eð er engin að fara að lesa þetta.
Ég gæti meira að segja sagst ætla að fara í kynskpitiaðgerð eða að ég sé hommi eða að ég ætli að drepa mig á árinu eða að ég væri annar en ég er o.s.frv. og það myndi engin kippa sér upp við það af því að það mundi engin vita af því.

Ég veit að ég blogga ekki oft, enda aldrei neitt merkilegt að gerast hjá mér. Kíki samt alltaf á síðuna hennar Sóleyjar til að fá hugmyndir að bloggum eða þess háttar. Ég ætlaði meðal annars að blogga svipað og hún, far djúpt í málin og gera þetta svona rithöfundarlegt og algjörlega óskyljanlegt. En þar sem það tekur svo langan tíma að gera svoleiðis blogg, hætti ég við. Það verður samt að viðurkennast að það er mjög skemmtilegt að lesa þannig blogg og örugglega skemmtilegra þegar maður gerir þau sjálfur og engin skilur þau.
Kannski er ég byrjaður að pæla of mikið í þessu, og það er ekkert alltof gott. Á frekar erfitt með að stoppa þegar ég er byrjaður. En þar sem ég er ekki að fara neitt með þessu er ágætt að ég stoppi bara hér.

Kveðja
:haha: Stefán :haha:

P.S þar sem ég er veikur getur verið að ég bloggi meira, kannski kemur eitt svona “rithöfundablogg” :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 00:01:08 / Stefán

Sóley á ammæli!

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Sóley,
hún á afmæli í dag.

 

Hún er 17 ára í dag,
hún er 17 ára í dag,
hún er 17 ára hún Sóley,
hún er 17 ára í dag.

 

Til hamingju með afmælið bestastasta frænka í heimi
megiru lifa vel og lengi.

 

Já, þá er Sóley frænka loksins orðin 17 og bílprófið á næsta leiti.


Ákvað að koma með nokkrar myndir í tilefni dagsins:


17. júní 2005 (takið eftir Fanta Bambootcha, eða hvað sem það var, bílnum þarna fyrir aftan)



Sóley með "fallega" pakkaskrautið í hárinu




Holy Silvía Night!!!..skiluru



Allir eiga sína góðu daga....



og ekki má gleyma þeim slæmu



Sóley í yndislega skær-gula og skítuga pollagallanum



Allir verða að elska eitthvað (í Sóleyjar tilfelli eru það kanínuungar)




Sóley með sólgelraugun sín sem hún keypti í Tiger (þau týndist víst á unglingalandsmótinu, á Vík í Mýrdal)


P.S. Sóley, sorry þetta með myndirnar (veit að þetta eru ekki þær bestu í heimi 0)

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 21:07:23 / Stefán

Til Hamingju Ísland (framhald)!!!

Þegar það kom í ljós að Silvía Nótt Sæmundsdóttir fengi að taka þátt í forkeppninni fyrir Eurovision létti örugglega af mörgum. Enda engin ástæða, þannig séð, að reka hana úr keppninni. Silvía Nótt tók sem sagt þátt í forkeppninni og komst áfram. En ekki nóg með það heldur vann hún hana (keppnina) líka og er því á leiðinni til Grikklands fyrir Íslands hönd núna í maí. Regína Ósk lenti í 2. sæti og Friðrik Ómar lenti í því 3. Birgitta lenti aftur á móti í 5. sæti.
Hugað er nú samt að því að leyfa henni ekki að fara út að því að kæran er víst enn í gildi og einhverjir tlja að hún sé ekki gott fordæmi fyrir Íslensku þjóðina. En ég efast um að henni verði bannað að fara út.

Hef svona verið að fylgjst með umræðum um að Silvíu og lagið hennar á Eurovision síðunni og er mis vel talað um hana þar og lagið. Henni er ekki spáð góðu gengi hjá sumum en sumir spá henni í Topp 10. Það hefur líka verið sagt að við Íslendingar höfum gert hræðileg mistök með því að láta hana keppa fyrir okkar hönd. En fólk verður bara að gara sér grein fyrir því að við, Íslendingar, vitum betur. Við eigum aldrei eftir að vinna. Þannig að afhverju megum við ekki koma með eitt grínlag einu sinni, bara svo að við getum loksins haf gaman að þessu?
Íslendingarnir sem eru aftur á móti að tjá sig þarnar eru flestir sammála um að lagið sé gott og að við eigum skilið að fá að hlægja loksins af sjálfum okkur. En svo eru það líka skrítnu Íslendingarnir sem segja að lagið sé hræðilegt og að hann/hún hafi nú kossið þetta lag eða hitt og það eigi frekar að fá að fara út.

Ég held að á þessu ári verði sett nýtt met á Íslandi í áhorfi á Eurovision. Og hverju verður það að þakka?  Nú Silvíu Nótt auðvitað. Silvía mun aðvit gjörbreyta þessari keppni og ég efst um að það verði auðvelt fyrir fólk að gleyma henni.
Svo er Sigga Beinteins bara snilld sem bakrödd. Ég bjóst samt ekki við því að sjá hana í svona dressi. En hvað gerir Sigga ekki fyrir góðan vin, hann Þorvald Bjarna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5